Jæja í dag er föstudagurinn 8. des.....
ekki nema 16 dagar til jóla og hvað á ég eftir að gera ??
Flest allt. Er að vísu búin að versla nokkrar jólagjafir but
thats it. Ætla að skella mér í þetta hvað á hverju.....
talaði nú við Hanný vinkonu í fyrradag og hún var að klára að
gera jólahreingerninguna !!!
issss ég fékk nú bara smá
kvíðakast að heyra það ahahaha
nei nei ég hef nógann
tíma, tek þetta bara á mínum hraða.
En prófin eru búin !!!! Til hamingju með það
Thelma mín. Haldiði að stelpan hafi ekki klúðrað íslenskuprófinu
eða ég held það....... held að það sé ekki séns að ég hafi náð
því, enda hef ég ALDREI á ævinni séð eins hræðilega ósanngjarnt
próf. Held að íslenskukennararnir hafi ekki verið edrú þegar að
þeir gerðu þetta fræga próf. Pufff það kemur bara í ljós þann 15.
hvort að ég náði eður ei.
En ég vil hér með óska öllum þeim sem að eru búnir í prófum til
hamingju !!!
Ég var að vinna í gærkveldi og verð að vinna alla
helgina. Vaktin var bara fín, frekar rólegt bara. Er farin að kunna
betur og betur við mig þarna því að ég er að komast inn í
ótrúlegustu hluti. Líður ekki á löngu að maður fer að kanga um
ganginn og stjórna liðinu eins og Gunna vinkona segir hahaha......
Ótrúlega mikið af aðgerðum sem að rúlla þarna í gegn á degi
hverjum. Hátt í 50-60 aðgerðir á dag !! mér finnst það soldið
mikið..... enda er spítalinn stór.
En þeir sem að horfðu á fréttirnar á stöð 2 í
gærkveldi sáu umfjöllunina um manneklu á Landspítalanum. Það vantar
100 hjúkrunarfræðinga og 30 sjúkraliða, er þetta í lagi eða ?? Nei
aldeilis ekki. Siv Friðleifsdóttir kom þarna í viðtal til að svara
fyrir þetta en hvað gerði hún? SNÉRI ÖLLU VIÐ OG SVARAÐI Í RAUN
ENGU !! Hún segir að lausnin sé að flytja bara inn fólk til að
vinna þessi störf.... já Siv mín er ekki í lagi ?? Endilega flytjið
inn fólk, borgið fyrir það flugfarið til Íslands, leigið íbúð fyrir
það og látið þau fá hærri laun en íslenskir hjúkrunarfræðingar !!!
HÆKKIÐ BARA LAUNIN HJÁ ÍSILENSKUM HJÚKKUM FREKAR. Það eru 500
hjúkrunarfræðingar að vinna önnu störf en hjúkkustörf í dag því að
þeir fá betur borgað við það. Ég veit um hjúkku sem fær betur
borgað við að svara í símann hjá Eimskip en að vinna
á Landspítalanum og þá erum við að tala um vinnu frá 8-4 !!
ekki einu sinni vaktavinnu, er þetta í lagi, á þetta að vera svona
?? NEI.... þýðir ekkert að fjölga bara nemendum í HÍ og hækka ekki
launin.
Þetta er eins með sjúkraliðann, ég fæ nú ekki brjálaðslega góð
laun í Lansanum en hey ég læt mig hafa það. Þangað til að ég fór að
pæla soldið í þessu ..... ÉG FÆ HÆRRI LAUN VIÐ AÐ VINNA Á KASSA Í
BÓNUS !!! halló hafnarfjörður issss þetta land er að fara til
fjandans, það er á hreinu .........
Ætla hér með að gefa skít í þessa pólitíkusa á
þessu litla landi mínu, þeir eru EKKI að standa sig, langt frá því
...... En til hvers þurfa þeir að standa sig þeir eru hvort sem er
með fleiri hundruð þúsund í tekjur á mánuði ......
Thelma Úrúrbilaðreiða !!!!